02. maí 2024

Kvika birtir þriggja mánaða uppgjör.

Á stjórnarfundi þann 2. maí 2024 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2024.

Í árshlutareikningi samstæðu Kviku fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 er tryggingafélagið TM tryggingar hf. flokkað sem eign haldið til sölu. Þar af leiðandi og í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla færir samstæðan tekjur af tryggingastarfsemi sinni í einni línu í rekstrarreikningi sem hagnað eftir skatta af aflagðri starfsemi. Samanburðartölur við rekstur ársins 2023 hafa verið uppfærðar til samræmis.

Helstu atriði fyrsta ársfjórðungs 2024:

  • Hagnaður fyrir skatta, án afkomu TM, nam 1.215 milljónum króna, samanborið við 895 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkar því um 36% frá árinu áður.
  • Hagnaður samstæðunnar eftir skatta nam 1.083 milljónum króna, samanborið við 1.167 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og lækkar um 7% frá árinu áður.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta var 12,1%, samanborið við 13,1% á sama tímabili árið 2023. Arðsemi efnislegs eiginfjár af áframhaldandi starfsemi nam 15,5% á fyrsta ársfjórðungi 2024.
  • Hagnaður á hlut nam 0,23 kr. á fyrstu þrem mánuðum ársins 2024, samanborið við 0,24 kr. á sama tímabili árið 2023.

Helstu tekjuliðir af banka- og eignastýringarstarfsemi:

  • Hreinar vaxtatekjur námu 2.326 milljónum króna, samanborið við 1.985 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkuðu um 17% frá fyrra ári.
  • Vaxtamunur var 3,8% á fyrstu þrem mánuðum ársins 2024.
  • Hreinar þóknanatekjur námu 1.633 milljónum króna, samanborið við 1.488 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkuðu um 10% frá fyrra ári.
  • Aðrar rekstrartekjur námu 110 milljónum króna, samanborið við 16 m.kr. á sama tímabili árið 2023.

Afkoma af eignum haldið til sölu:

  • Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM tryggingar, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 96 milljónum króna á tímabilinu, samanborið við 428 m.kr. á sama tímabili árið 2023.
  • Samsett hlutfall trygginga nam 100,5%, samanborið við 99,8% á sama tímabili árið 2023.

Helstu atriði efnahags:

  • Innlán frá viðskiptavinum námu 137 milljörðum króna, samanborið við 134 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 2,5% á tímabilinu.
  • Útlán til viðskiptavina voru 146 milljarðar króna, samanborið við 136 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 7% á tímabilinu.
  • Heildareignir námu 351 milljarði króna, samanborið við 335 ma.kr. í lok árs 2023.
  • Eigið fé samstæðunnar var 83 milljarðar króna í lok tímabilsins, samanborið við 82 ma.kr. í lok árs 2023.
  • Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 22,1%, samanborið við 22,6% í lok árs 2023 og var gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar 1,18 í lok tímabilsins. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar fjórðungsins en eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,7% í lok mars..
  • Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 286%, samanborið við 247% í lok árs 2023
  • Heildareignir í stýringu námu 474 milljörðum króna, samanborið við 470 ma.kr. í lok árs 2023.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Rekstur bankastarfsemi Kviku var prýðilegur á fyrsta ársfjórðungi og ánægjulegt að sjá umtalsverða hagnaðaraukningu af starfseminni milli ára. Hagnaður fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi, án afkomu TM, nam 1.215 milljónum króna, samanborið við 895 milljónir króna á sama tímabili árið 2023 og hækkar því um 36% frá árinu áður.

Nær allir tekjuliðir jukust milli ára á sama tíma og vel gekk að halda aftur af kostnaði. Þrátt fyrir þráláta verðbólgu og umtalsverðar launahækkanir náðist að halda rekstrarkostnaði nánast óbreyttum milli ára. Allar viðskiptaeiningar bankans gengu vel á fyrsta ársfjórðungi og ánægjulegt er að sjá viðsnúninginn sem hefur verið í rekstri bankans í Bretlandi eftir krefjandi umhverfi undanfarin tvö ár.

Arðsemi af efnislegu eigin fé bankastarfseminnar var 15,5%, sem er nokkuð undir langtímamarkmiði okkar en við sjáum þess merki að við munum nálgast það markmið á næstu misserum.

Tryggingarekstur TM var í takt við áætlanir og keimlíkur fyrsta fjórðungi síðasta árs, en fyrsti fjórðungur ársins er að öllu jöfnu sá þyngsti í rekstri tryggingafélaga. Markaðsaðstæður voru hins vegar óhagstæðar á tímabilinu og fjárfestingatekjur félagsins voru því talsvert undir væntingum.

Hagnaður fyrir skatta, að meðtalinni afkomu TM, nam 1.345 milljónum króna. Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 12,1%.

Vinna við lúkningu endanlegrar áreiðanleikakönnunar og undirritun kaupsamnings við Landsbankann vegna sölu TM hefur gengið ágætlega og mun bankinn halda markaðnum upplýstum eftir því sem mál þróast.“

Til baka